Liv Cycling

Liv Cycling

Liv, systurmerki Giant, er fyrsta vörumerkið sem býður upp á heila vörulínu af hjólum sem hönnuð eru sérstaklega fyrir konur. Vörulínan inniheldur allt frá vönduðum racer-keppnishjólum yfir í fjallahjól af grófustu gerð (órafmögnuð eða rafmögnuð)  og allt þar á milli.

Hjá Liv eru konur virkar í öllu hönnunar og vöruþróunarferlinu. Þannig eru Liv hjólin ekki eingöngu smærri útgáfur af Giant hjólunum, heldur eru öll smáatriði hjólanna t.d. hnakkar, stýri og annað hannað með þarfir kvenna í huga.